Netnámskeið Barnahúss um einkenni kynferðisofbeldis og viðbrögð

Sérfræðingar Barnahúss hafa útbúið netnámskeið með grunnfræðslu um kynferðislegt og kynbundið ofbeldi og áreitni. Námskeiðið fjallar um einkenni barna sem hafa orðið fyrir kynferðisofbeldi og hvernig bregðast skuli við ef barn greinir frá ofbeldi. Námskeiðið er í fjórum útgáfum með eftirfarandi markhópa í huga:

  1. leikskóla,
  2. yngri bekki grunnskóla ásamt frístundaheimilum,
  3. eldri bekki grunnskóla ásamt félagsmiðstöðvum
  4. framhaldsskóla.

Námskeiðið er hannað með þeim hætti að stjórnendur geti fylgst með að starfsfólk hafi lokið námskeiðinu þar sem starfsfólk fær viðurkenningarskjal í lok námskeiðisins sem ætlað er til upplýsinga fyrir yfirmenn. Barna- og fjölskyldustofa fær sjálfkrafa upplýsingar um heildarfjölda þeirra sem taka námskeiðið.

Útgefandi: Barna- og fjölskyldustofa

Hvað: Námskeið

Viðbragðsáætlun

Viðbragðsáætlun og gátlisti fyrir starfsfólk grunnskóla þegar grunur vaknar um vanrækslu, ofbeldi og/eða áhættuhegðun barna.

Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga

Hvað: Pdf.


Viðbragðsferill vegna kynferðislegs og/eða kynbundins ofbeldis eða áreitis

Skráningarblað fyrir starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum (til dæmis innan skóla og frístundasviðs) til að skrá atvik sem snúa að kynferðislegu og/eða kynbundnu ofbeldi eða áreitni og beina þeim í viðeigandi farveg.

Útgefandi: Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitafélaga

Hvað: Pdf.

Forvarnarteymi

Hér má skoða hvert hlutverk forvarnarteyma í skólum er skv. aðgerðaráætlun um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni í skólastarfi.

Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga

Hvað: Pdf.

Örnámskeið um kynferðislegt ofbeldi og áreiti

Örnámskeið fyrir starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum, haldið af Barnahúsi í mars 2022. Þar er farið yfir grunnatriði varðandi kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum, tilkynningarskyldu starfsfólks, ferli mála og einkenni ofbeldis hjá börnum og ungmennum.

Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga

Hvað: Myndband – upptaka


Mælaborð forsætisráðuneytisins

Alþingi samþykkti í júní 2021, þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025.

Áætluninni fylgja 26 aðgerðir sem eru brotnar niður á sex meginþætti. Ábyrgðaraðilar aðgerða eru ýmist ráðuneyti, stofnanir eða samtök. Á þessu svæði er farið yfir framgang aðgerðanna 26 á myndrænan hátt.

Útgefandi: Forsætisráðuneytið

Hvað: Vefefni

Örnámskeið fyrir starfsfólk leikskóla, haldið í september 2022

Hér er farið yfir grunnatriði varðandi kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum á leikskólaaldri, tilkynningarskyldu starfsfólks, ferli mála og einkenni ofbeldis hjá börnum.

Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga

Hvað: Myndband – upptaka

Foxit Reader eða Kami – Að vista verkefnabækur og skrifa inn í þær

Hægt er að vista pdf skjöl eins og verkefnabækur og rafbækur frá Menntamálastofnun í forritunum Foxit Reader og Kami og leysa verkefnin inn í þau í tölvunni. Þegar bók er opnuð í þessum forritum birtast valmöguleikar sem gera þér kleift að skrifa á línurnar og vinna með efnið.
Hér eru upplýsingar um hvernig farið er að í Foxit Reader. 
Foxit Reader forritið má sækja hér. 
Forritið Kami er viðbót við Google Drive og Google classroom,  Kami má sækja hér