Á ferð um samfélagið
Útgefandi: Menntamálastofnun
Höfundur: Garðar Gíslason
Hvað: Bók, rafbók, hljóðbók og kennsluleiðbeiningar
Kynfræðsluvefurinn
Útgefandi: Menntamálastofnun
Höfundur: Margrét Júlía Rafnsdóttir
Hvað: Vefur
Alls kyns um kynferðismál
Í þessari teiknuðu stuttmynd er fjallað um ýmsar hliðar kynferðismála. Rætt er um hugtök eins og kyn, kynvitund, kynhneigð og kynlíf. Myndin er einkum ætluð 13–15 ára nemendum. Hún er einnig til textuð.
Útgefandi: Menntamálastofnun
Höfundur: Þórdís Elva Þorvaldsdóttir
Hvað: Fræðslumynd
Fáðu já!
Fáðu já! er stuttmynd sem ætlað er að skýra mörkin á milli kynlífs og ofbeldis, vega upp á móti áhrifum klámvæðingar, brjóta ranghugmyndir á bak aftur og innræta sjálfsvirðingu í nánum samskiptum.
Útgefandi: Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum
Hvað: Stuttmynd og leiðarvísir
Samþykki er sexý
Bæklingur sem fjallar um mörkin á milli kynlífs og ofbeldis.
Útgefandi: Samþykkishópurinn
Hvað: Bæklingur, pdf.
Örugg saman
Fræðsluefni sem samanstendur af kennarahefti og nemendahefti. Örugg saman fjallar um andlegt, líkamlegt og kynferðislegt ofbeldi í nánum samskiptum og hvernig bregðast megi við ef ofbeldi á sér stað. Efnið er byggt á bandarísku námsefni.
Útgefandi: Embætti landlæknis
Hvað: Kennsluhefti
Vika6 2020 (5 þættir)
Útgefandi: Reykjavíkurborg og RUV
Hvað: Fræðsluþættir
Vika6 2021 (6 þættir)
- Góð ráð áður en þú stundar kynlíf
- Klám er ekki góð kynfræðsla
- Hvernær er maður tilbúinn að stunda kynlíf?
- Hvað þýðir að kynlífi fylgi ábyrgð?
- Hvað er kynlíf?
- Af hverju er sjálfsfróun mikilvæg
Útgefandi: Reykjavíkurborg og RÚV
Hvað: Fræðsluþættir/umræðuþættir
Vika6 2022 Kynlíf og menning
Vika6 byggir á danskri hugmynd og er tileinkuð því að vekja athygli á mikilvægi kynheilbrigðis og kynfræðslu fyrir börn og ungmenni. Reykjavíkurborg hefur keyrt vikuna þrjú ár í röð. Ungmennin ákveða þemu vikunnar með þátttöku í könnun á meðan á undirbúningi stendur. Í ár er þemað kynlíf og menning og er allt starfsfólk sem vinnur með börnum og ungmennum hvatt til að setja kynheilbrigði á oddinn þessa vikuna. Foreldrar eru líka hvattir til þátttöku í vikunni með innihaldsríku og góðu samtali við börnin sín. Það er aldrei nóg að spjalli um kynheilbrigði.
Útgefandi: Reykjavíkurborg
Hvað: Vefur
Leiðin áfram – (8 myndir)
Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi hefur gefið út 9 fræðslumyndbönd sem ganga undir heitinu Leiðin áfram. Myndböndunum er skipt eftir aldri brotaþola, fyrir 14 ára og yngri og 15 ára og eldri. Þar er farið í gegnum ferlið innan réttarvörslukerfisins eftir að kynferðisbrot hefur átt sér stað. Fjallað er um eftirfarandi málefni.
14 ára og yngri þolendur kynferðisofbeldis.
- Hvað gerist eftir rannsóknina á brotinu?
- Viðtal í Barnahúsi fyrir 14 ára og yngri.
- Leitaðu til lögreglu ef þú hefur orðið fyrir kynferðisofbeldi.
- Hvað gerist hjá dómstólum?
15–18 ára þolendur kynferðisofbeldis
- Embætti ríkissaksóknara ákveður hvort ákært verður í máli.
- Skoðun á Neyðarmóttöku.
- Leitaðu til lögreglu og kærðu kynferðisafbrot.
- Skýrslutaka í Barnahúsi.
- Dómstólar.
Markmið Vitundarvakningarinnar með gerð myndanna er að veita upplýsingar sem auðvelda þolendum og aðstandendum þeirra að sækja sér aðstoð.
Útgefandi: Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum
Hvað: Fræðsluþættir
Myndin af mér – myndin og kennsluleiðbeiningar
Íslensk leikin stuttmynd um stafrænt kynferðisofbeldi. Myndin byggir á sönnum frásögnum af því þegar nektarmyndir sem sendar eru í trúnaði fara á flakk og fjallar um þau áhrif sem slíkt hefur á líf fórnarlambanna.
Hvað: Fræðslumynd
Mannasiðir
Íslensk mynd um menntaskólanema sem er ákærður fyrir að nauðga skólasystur sinni. Hann neitar sök en á sér ekki viðreisnar von innan veggja skólans þar sem stúlkan á sterkt stuðningsnet. En þegar stúlkan mætir í viðtal á sjónvarpsstöðinni þar sem mamma hans vinnur tekur sagan óvænta stefnu. Mikilvægt er að ræða efni myndarinnar við nemendur að áhorfi loknu og skoða það sem gerðist í myndinni.
Leikstjóri og handritshöfundur er María Reyndal en myndin er byggð á útvarpsleikriti sem María skrifaði og leikstýrði fyrir RÚV árið 2017.
Útgefandi: RUV
Hvað: Fræðslumynd í tveimur þáttum.
Sjúk ást
SJÚKÁST er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.
Þessi vefsíða inniheldur auðlesnar upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur samböndum ungs fólks. Á henni má finna upplýsingar um birtingarmyndir ofbeldis, kynlíf, klám, hvað einkennir heilbrigð sambönd og ýmislegt fleira. Þá eru hér líka upplýsingar um jafnrétti og femínisma auk kafla um aktívisma fyrir þau sem vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn ofbeldi.
Útgefandi: Stígamót
Hvað: Fræðsluefni
Ofbeldi í samböndum – Sóley
Ofbeldi í samböndum, líka kallað heimilisofbeldi, er þegar sá sem beitir ofbeldinu er skyldur eða tengdur þér. Til dæmis fjölskyldumeðlimur, núverandi eða fyrrverandi kærasti eða kærasta, vinir eða umönnunaraðili.
Dæmi um ofbeldi er að slá, klípa, hrinda, hóta, öskra, vanræksla, káf og að láta aðra gera eitthvað kynferðislegt sem þeir vilja ekki. Að horfa upp á aðra á heimilinu vera beitta ofbeldi er líka ofbeldi.
Útgefandi: Jafnréttisstofa
Hvað: Fræðslumynd
Stafrænt kynferðisofbeldi
Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, skólastýra Jafnréttisskóla SFS, fjallar um foreldrabréf um nýja birtingamynd kynferðisofbeldis.
Útgefandi: Heimili og skóli og SAFT
Hvað: Fræðsluþáttur
Lífsleikni og kynfræðsla
Undir hverju aldursstigi má skipta kynfræðslu í nokkra þætti.
- Samskipti og sambönd
- Gildi, réttindi, menning og kynferði
- Að skilja kyn, kynímyndir og kynhlutverk
- Öryggi og ofbeldi
- Heilsa og velferð
- Mannslíkaminn og þroski
- Kynferði og kynferðisleg hegðun
- Kynlíf, kynheilbrigði og æxlun
Undir hverjum þætti eru nokkrar mismunandi lykilhugmyndir sem liggja að baki og þau markmið sem miða að því að efla færni nemandans í þessum meginþáttum kynfræðslunnar. Einnig má finna safn kennsluefnis hér á síðunni sem styðja við þau markmið sem sett eru fram.
Útgefandi: Hilja Guðmundsdóttir í Sæmundarskóla
Hvað: Vefur
Að drekka te – Að setja mörk
Stuttmynd á youtube sem fjallar um líkindi þess að drekka te og setja mörk og virða mörk í kynlífi.
Hvað: Myndband
Höfundarréttur: © 2015 Emmeline May og Blue Seat Studios
Hinsegin frá Ö til A
Til að hægt sé að ræða um og spá í hinsegin veruleika verðum við að eiga orð og hugtök yfir hann. Ef við ættum engin orð yfir hinsegin tilveru værum við ósýnileg. Þá væri ekki hægt að tala um gleðina sem fylgir því að vera hinsegin, um vegferðina, félagsskapinn, pólitíkina og allt hitt. Þess vegna er fyrsti hluti þessa vefs helgaður nokkrum hugtökum sem leggja grunninn að skilningi á hinsegin málefnum.
Útgefandi: Samtökin ´78
Hvað: Myndband
Ekki vera þessi gaur
„Ekki vera þessi gaur“ er vitundarvakning til að fræða karlmenn um sem vilja koma í veg fyrir kynferðisofbeldi. Efnið er byggt á vitundarvakningu um sama efni í Skotlandi (That Guy) og Kanada (Sexual Assault Voices in Calgary). Þar er lögð áhersla á að fræða unga karlmenn um eigin hegðun gagnvart konum og hvetja þá til að verða hreyfiafl meðal jafningja sinna í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Útgefandi: 112
Hvað: Myndband
Sjúkt spjall
Sjúkt spjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndunum sínum, samskiptum eða ofbeldi.
Spjallið er fyrir fólk yngra en 20 ára af öllum kynjum.
Ekki hika við að nýta ykkur þetta!
Útgefandi: Stígamót
Hvað: Vefur
Gegn einelti – Stöndum saman
Á vefnum er að finna upplýsingar um eineltismál þar sem nemendur, foreldrar og fagfólk geta nálgast upplýsingar og góð ráð.
Útgefandi: Menntamálastofnun
Hvað: Vefur