Netnámskeið Barnahúss um einkenni kynferðisofbeldis og viðbrögð
Barna- og fjölskyldustofa hefur framleitt fimm ný rafræn námskeið um kynferðisofbeldi gagnvart börnum. Þessi námskeið eru ætluð öllum þeim sem koma að starfi með börnum upp að 18 ára aldri.
Námskeið fyrir verðandi fósturforeldra
Kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga
- Fyrir þau sem starfa með 2 – 6 ára börnum
- Fyrir þau sem starfa með 6 – 12 ára börnum
- Fyrir þau sem starfa með 12 – 16 ára unglingum
- Fyrir þau sem starfa með 16 – 18 ára unglingum.
Námskeiðin eru öllum að kostnaðarlausu en hver og einn þarf að skrá sig inn á námskeið að eigin vali. Þegar námskeiði er lokið fær viðkomandi sent í tölvupósti skjal sem staðfestir að viðkomandi hafi lokið námskeiðinu. Hvert námskeið byggir á er farið yfir möguleg einkenni kynferðisofbeldis, tilkynningaskylduna, þau viðbrögð sem eru mikilvæg verði starfsfólk þess áskynja að barn sýni óeðlilega kynhegðun, ber einkenni þess sem hefur orðið fyrir ofbeldi eða sýni þess merki að það vilji segja frá. Einnig hvað þykir eðlileg kynferðisleg hegðun barna á ákveðnum aldri, hvaða hegðun veldur áhyggjum og hvenær ráðlegt er að kalla eftir áliti sérfræðings. Námskeiðin samanstanda af sex námsþáttum en hver námsþáttur byggir á stuttum myndböndum, spurningum til umhugsunar og ítarefni.
Námskeiðin eru aldurskipt og miðað er við að þátttakendur velji sér námskeið eftir því á hvaða aldri þau börn eru sem viðkomandi hefur helst afskipti af gegnum störf sín.
Útgefandi: Barna- og fjölskyldustofa
Hvað: Námskeiðin Kynferðisofbeldi og kynferðisleg hegðun barna og unglinga
Leiðarvísir um viðbrögð framhaldsskóla við EKKO málum nemenda
Um er að ræða leiðarvísi fyrir framhaldsskóla um viðbrögð við EKKO málum nemenda sem upp koma.
Leiðarvísirinn á að vera verkfæri sem styður framhaldsskóla í viðbrögðum við EKKO málum.
Í leiðarvísinum er samheitið EKKO notað yfir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi og kynbundið ofbeldi.
Útgefandi: Mennta- og barnamálaráðuneyti
Hvað: rafbók – flettibók
Viðbragðsáætlun
Viðbragðsáætlun og gátlisti fyrir starfsfólk grunnskóla þegar grunur vaknar um vanrækslu, ofbeldi og/eða áhættuhegðun barna.
Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga
Hvað: Pdf.
Viðbragðsferill vegna kynferðislegs og/eða kynbundins ofbeldis eða áreitis
Skráningarblað fyrir starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum (til dæmis innan skóla og frístundasviðs) til að skrá atvik sem snúa að kynferðislegu og/eða kynbundnu ofbeldi eða áreitni og beina þeim í viðeigandi farveg.
Útgefandi: Reykjavíkurborg og Samband íslenskra sveitafélaga
Hvað: Pdf.
Forvarnarteymi
Hér má skoða hvert hlutverk forvarnarteyma í skólum er skv. aðgerðaráætlun um forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni í skólastarfi.
Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga
Hvað: Pdf.
Örnámskeið um kynferðislegt ofbeldi og áreiti
Örnámskeið fyrir starfsfólk sem starfar með börnum og ungmennum, haldið af Barnahúsi í mars 2022. Þar er farið yfir grunnatriði varðandi kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum og ungmennum, tilkynningarskyldu starfsfólks, ferli mála og einkenni ofbeldis hjá börnum og ungmennum.
Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga
Hvað: Myndband – upptaka
Mælaborð forsætisráðuneytisins
Alþingi samþykkti í júní 2021, þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025.
Áætluninni fylgja 26 aðgerðir sem eru brotnar niður á sex meginþætti. Ábyrgðaraðilar aðgerða eru ýmist ráðuneyti, stofnanir eða samtök. Á þessu svæði er farið yfir framgang aðgerðanna 26 á myndrænan hátt.
Útgefandi: Forsætisráðuneytið
Hvað: Vefefni
Örnámskeið fyrir starfsfólk leikskóla, haldið í september 2022
Hér er farið yfir grunnatriði varðandi kynferðislegt ofbeldi og áreitni gegn börnum á leikskólaaldri, tilkynningarskyldu starfsfólks, ferli mála og einkenni ofbeldis hjá börnum.
Útgefandi: Samband íslenskra sveitafélaga
Hvað: Myndband – upptaka
Foxit Reader eða Kami – Að vista verkefnabækur og skrifa inn í þær
Hægt er að vista pdf skjöl eins og verkefnabækur og rafbækur frá Menntamálastofnun í forritunum Foxit Reader og Kami og leysa verkefnin inn í þau í tölvunni. Þegar bók er opnuð í þessum forritum birtast valmöguleikar sem gera þér kleift að skrifa á línurnar og vinna með efnið.
Hér eru upplýsingar um hvernig farið er að í Foxit Reader.
Foxit Reader forritið má sækja hér.
Forritið Kami er viðbót við Google Drive og Google classroom, Kami má sækja hér