Vefefni
Meinalust?
Vitundarvakningin Meinlaust? hófst í september 2023. Allar herferðirnar fjórar byggðu á sönnum sögum. Fyrsta herferðin byggði á MeToo sögum en hinar þrjár voru unnar í samstarfi við hagsmunasamtök:
- Fyrsti hluti beindist að birtingarmyndum kynbundinnar og kynferðislegrar áreitni í samfélaginu. Markmiðið var að fá fólk til að opna augun fyrir sambandi á milli slíkrar hegðunar og hugmynda um karlmennsku, mörk og samþykki.
- Annar hluti var í samstarfi við Samtökin 78. Markmiðið var að vekja athygli á birtingarmyndum öráreitni sem hinsegin fólk verður fyrir í samfélaginu og fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingum slíks öráreitis.
- Þriðji hluti var í samstarfi við Þroskahjálp. Markmiðið var að vekja athygli á birtingarmyndum öráreitni í garð fatlaðs fólks og fá fólk til að opna augun fyrir afleiðingum þess.
- Fjórði og síðasti hluti er sem fyrr segir í samstarfi við félagasamtökin Hennar rödd. Markmið félagasamtakanna er að auka vitund meðal almennings um stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.
Útgefandi: Jafnréttisstofa
Hvað: Veggspjöld
Skýrsla um áhorf barna á klám
Í skýrslu þessari má sjá tengsl klámáhorfs við ýmsa vanlíðan barna og ungmenna og þó að ekki sé hægt að fullyrða um orsakatengsl þá vekja þessi tengsl áhyggjur.
Góðu fréttirnar eru þær að meðal drengja virðist mikið klámáhorf hafa minnkað á síðustu árum, en hins vegar er algengara en það var að stelpur horfi á klám.
Vonast er til að þetta mat og þær tillögur sem því fylgja megi nýtast í þeirri vinnu að tryggja markvissa og gagnreynda kynfræðslu svo að börn og ungmenni leiti síður í klámefni til að fá upplýsingar um kynlíf. Þá þarf kynfræðsla að vera hluti af stærra mengi, þar sem kynjafræði, heilsulæsi og miðlalæsi fléttast saman.
Útgefandi: Embætti landlæknis
Hvað: skýrsla
Barnasáttmálinn – skýringamyndbönd
Í þessu myndbandi verður farið yfir það af hverju börn eiga sérstök mannréttindi, hvernig Barnasáttmálinn varð til og einnig eru mannréttindi skilgreind. Útskýrt er hvernig öll réttindi
Útgefandi: Unicef
Hvað: Myndband
Barnahús – Upplýsingabæklingur
Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Hér er fjallað um starfsemi Barnahúss, helstu markmið og þjónustu. Einnig er farið yfir hvað á að gera ef grunur er um að barn sæti ofbeldi og hvernig á að bregðast við ef barn segir frá.
Útgefandi: Barnahús
Hvað: Bæklingur
Kynferðislegt ofbeldi og kynferðisleg áreitni í íþróttum
Markmiðið með þessum bæklingi og verkferlum er að íþróttastarf geti farið fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir og leitað sér aðstoðar eða réttar síns vegna atvika og misgerða sem þar koma upp án ótta við afleiðingar.
Útgefandi: Íþróttabandalag Reykjavíkur.
Hvað: Pdf. – bæklingur
Þú átt von
Á Íslandi býðst fólki sem býr við heimilisofbeldi fjölbreyttur stuðningur og aðstoð. Aðstæður hvers og eins eru ólíkar og því mikilvægt að kynna vel öll þau ólíku úrræði sem hægt er að leita í til þess að fá þann stuðning sem þörf er á hverju sinni.
Það er markmið þessa verkefnis að tryggja að allt þetta fólk fái upplýsingar um að það er von um betra lífi og að við sem samfélag viljum sameina krafta gegn ofbeldi og veita þolendum, gerendum og aðstandendum þeirra sem bestan stuðning á erfiðum tímum. Ef í vafa skal alltaf hringja í 112 og þér verður vísað á réttan stað.
Útgefandi: Jafnréttisstofa á Akureyri
Hvað: Vefur
Kynungabók
Bókin inniheldur upplýsingar fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu og vekja ungt fólk til umhugsunar um hvernig mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma hefur áhrif á líf ungs fólks.
Útgefandi: Stjórnarráð Íslands
Höfundar: Berglind Rós Magnúsdóttir, Guðrún M. Guðmundsdóttir, Jóna Pálsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Myndir eftir Hugleik Dagsson.
Hvað: Pdf. rafbók
Áfallaviðbrögð við kynferðisofbeldi
Bæklingur sem fjallar um algeng viðbrögð við kynferðisofbeldi.
Útgefandi: Embætti landlæknis
Hvað: Pdf. bæklingur
Býrð þú við ofbeldi
Bæklingur sem fjallar um algengustu tegundir ofbeldis í nánum samböndum, andlegt, líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt. Bæklingurinn er til á íslensku, ensku og pólsku og gefinn út af Velferðarvaktinni og félagsþjónustunni á Suðurnesjum.
Útgefandi: Velferðarráðuneytið
Hvað: Bæklingur á mörgum tungumálum
Kynferðisleg hegðun barna, hvað er eðlilegt?
Bæklingur sem hugsaður er fyrir foreldra og starfsfólk til að greina á milli eðlilegrar kynferðislegrar hegðunar barna og óeðlilegrar. Í bæklingnum eru atriði sem vert er að hafa í huga þegar kemur að því að fylgjast með kynferðislegri hegðun barna á leikskólaaldri og til tíu ára aldurs.
Útgefandi: Barnahús
Hvað: Bæklingur
Fræðsluefni frá Barnaheill
Hvað: Fjölbreytt fræðsla.
Netið, samfélagsmiðlar og börn
Samstarfsverkefni umboðsmanns barna, Persónuverndar og Fjölmiðlanefndar um leiðbeiningar til foreldra, ábyrgðaraðila og starfsfólks í skóla- og frístundastarfi sem varða netið, samfélagsmiðla og börn.
Útgefandi: Fjölmiðlanefnd., Umboðsmaður barna, og Persónuvernd.
Hvað: Vefefni
Heilsuvera: Ofbeldi og vanræksla
Á vef Heilsuveru er að finna mikið af upplýsingum varðandi ofbeldi og vanrækslu. Undir hverjum lið á vefnum eru útskýringar á til dæmis tegundum ofbeldis, að koma í veg fyrir ofbeldi og hverjar afleiðingar þess geta verið.
Útgefandi: Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins, Embætti landlæknis og Landspítali
Hvað: Vefefni
Við viljum vita – Hljóðvörp tengd barnavernd
Hér er um að ræða hljóðvörp um ýmislegt sem tengist barnavernd og vinnu með börn sem eiga í vanda.
Hér er talað við starfsfólk í barnavernd, ráðamenn málaflokksins og áhugaverða einstaklinga sem tengjast honum.
Útgefandi: Barnaverndarstofa
Hvað: Vefefni
Börn og miðlalæsi
Börn og miðlalæsi
Þessi handbók er ætluð foreldrum barna á grunnskólaaldri. Í henni er fjallað um sjónarmið sem gott er að hafa í huga í tengslum við miðlanotkun barna og ungmenna. Handbókin er þýdd og staðfærð af fjölmiðlanefnd og Heimili og skóla. Hún er upprunalega gefin út í Finnlandi.
Útgefandi: Saft
Hvað: pdf