Ofbeldi gegn börnum
Í þessari handbók er fjallað um ofbeldi sem sum börn verða fyrir. Markmiðið með útgáfunni er að upplýsa kennara og annað starfsfólk skóla um einkenni og áhrif ofbeldis á börn og að vekja athygli á forvörnum, inngripi og úrræðum sem eru til staðar til að tryggja sem best velferð nemenda. Aftast í bókinni er yfirlit yfir náms- og fræðsluefni. Bókin er gefin út að tilstuðlan Vitundarvakningar um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum í samstarfi við Menntamálastofnun.
Útgefandi: Menntamálastofnun
Hvað: Bók og rafbók
Barnasáttmáli Sameinuðu þjóðanna
Á vefnum má finna ýmiskonar fróðleik, verkefni og leiki fyrir börn og unglinga um mannréttindi barna.
Útgefandi: Menntamálastofnun, Barnaheill, UNICEF og Umboðsmaður barna
Hvað: Vefefni og veggspjöld
Barnasáttmálinn – skýringamyndbönd
Í þessu myndbandi verður farið yfir það af hverju börn eiga sérstök mannréttindi, hvernig Barnasáttmálinn varð til og einnig eru mannréttindi skilgreind. Útskýrt er hvernig öll réttindi
Útgefandi: Unicef
Hvað: Myndband
Barnahús – Upplýsingabæklingur
Barnahús sinnir málefnum barna sem grunur leikur á að hafi sætt kynferðislegri áreitni eða ofbeldi. Hér er fjallað um starfsemi Barnahúss, helstu markmið og þjónustu. Einnig er farið yfir hvað á að gera ef grunur er um að barn sæti ofbeldi og hvernig á að bregðast við ef barn segir frá.
Útgefandi: Barnahús
Hvað: Bæklingur
5 skref til verndar börnum gegn kynferðisofbeldi.
Efni sem Blátt áfram tók saman og er hægt að nálgast á vef Barnaheilla.
Útgefandi: Blátt áfram og Barnaheill
Hvað: Pdf. skjal – bæklingur
Kynferðislegt ofbeldi og kynferðisleg áreitni í íþróttum
Markmiðið með þessum bæklingi og verkferlum er að íþróttastarf geti farið fram í öruggu umhverfi og að börn, unglingar og fullorðnir, óháð kynferði eða stöðu að öðru leyti, geti stundað íþróttir og leitað sér aðstoðar eða réttar síns vegna atvika og misgerða sem þar koma upp án ótta við afleiðingar.
Útgefandi: Íþróttabandalag Reykjavíkur.
Hvað: Pdf. – bæklingur
Þú átt von
Á Íslandi býðst fólki sem býr við heimilisofbeldi fjölbreyttur stuðningur og aðstoð. Aðstæður hvers og eins eru ólíkar og því mikilvægt að kynna vel öll þau ólíku úrræði sem hægt er að leita í til þess að fá þann stuðning sem þörf er á hverju sinni.
Það er markmið þessa verkefnis að tryggja að allt þetta fólk fái upplýsingar um að það er von um betra lífi og að við sem samfélag viljum sameina krafta gegn ofbeldi og veita þolendum, gerendum og aðstandendum þeirra sem bestan stuðning á erfiðum tímum. Ef í vafa skal alltaf hringja í 112 og þér verður vísað á réttan stað.
Útgefandi: Jafnréttisstofa á Akureyri
Hvað: Vefur
Sambönd og samskipti
Á þessari síðu má finna greinar og upplýsingar um ýmislegt er varðar sambönd og samskipti ungmenna – Sambönd við kærustu, kærasta, vini, foreldra og fjölskyldu.
Útgefandi: Embætti landlæknis
Hvað: Vefefni
Heilsuvera.is
Heilsuvera er vefur fyrir almenning um heilsu og áhrifaþætti hennar. Þar má finna mjög mikið efni tengt andlegri og líkamlegri vellíðan ungmenna.
Útgefandi: Embætti landlæknis
Hvað: Vefur
Kynungabók
Bókin inniheldur upplýsingar fyrir ungt fólk um jafnrétti kynja. Markmið með útgáfu Kynungabókar eru að veita raunsæja mynd af stöðu kynjanna í samfélaginu og vekja ungt fólk til umhugsunar um hvernig mismunandi mótun kynjanna út frá menningu, umhverfi og tíma hefur áhrif á líf ungs fólks.
Útgefandi: Stjórnarráð Íslands
Höfundar: Berglind Rós Magnúsdóttir, Guðrún M. Guðmundsdóttir, Jóna Pálsdóttir, Kristín Ástgeirsdóttir og Kristín Jónsdóttir. Myndir eftir Hugleik Dagsson.
Hvað: Pdf. rafbók
Kjaftað um kynlíf
Íslensk ungmenni eru yngri en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndunum þegar þau hefja kynmök, eiga fleiri rekkjunauta, smitast oftar af kynsjúkdómum, horfa meira á klám og tíðni unglingaþungana er hærri hjá þeim. Þessi handbók leggur foreldrum og þeim sem starfa náið með börnum og unglingum til verkfæri til þess að kjafta um kynlíf á opinskáan og áreynslulausan hátt. Með húmor og hreinskilni að leiðarljósi er auðveldara að ræða um málefni sem mörgum þykja óþægileg og sumir álíta jafnvel sem tabú. Orð eins og píka, klám, staðalímyndir, sjálfsfróun, sleipiefni og kynhneigð verða fyrir bragðið hversdagsleg og auðveld viðureignar. Börn og unglingar hafa þörf fyrir opnar samræður um kynferðisleg málefni. Það styrkir kynverund þeirra og býr þau undir að stunda kynlíf á sínum eigin forsendum þegar þau eru tilbúin til þess.
Útgefandi: Iðnú
Höfundar: Sigga Dögg
Hvað: Bók
KynVera
Í þessari bók birtast því raunverulegar samræður og spurningar sem unglingar hafa spurt að í kynfræðslu en einnig hlutir sem höfundur upplifði sjálf sem unglingur.
Þessi bók er ísbrjótur í samræðum um hjartans málefni sem mörgum þykja vandræðaleg og óþægileg en eru lífsins nauðsynleg.
Útgefandi: Kúrbítur
Höfundar: Sigga Dögg
Hvað: Bók
Daði
Bókin byggir á algengum spurningum og umræðum drengja úr kynfræðslu Siggu Daggar kynfræðings um land allt undanfarin tíu ár. Það er algengt að nota dæmisögur í kynfræðslu en hér er það form tekið lengra. Hér tvinnar höfundur saman raunveruleika íslenskra drengja og kynfræðslu í eina sögu þar sem lesandinn nær að spegla sig í persónunum en einnig að fræðast um tilfinningar, samskipti, kynhneigð og eigin kynveru.
Útgefandi: Kúrbítur
Höfundar: Sigga Dögg
Hvað: Bók
Fávitar
Fávitar er samfélagsverkefni Sólborgar Guðbrandsdóttur gegn stafrænu og annars konar kynferðisofbeldi en það hófst á samnefndri Instagram-síðu árið 2016. Sólborg hefur starfað sem fyrirlesari undanfarin ár og haldið fyrirlestra fyrir þúsundir barna og unglinga þar sem hún svarar spurningum þeirra meðal annars um kynlíf, ofbeldi, samskipti, líkamann og fjölbreytileika. Verkefnið hefur verið nýtt í skólum víðs vegar um landið með góðum árangri. Átakið Fávitar birtist nú í bókaformi þar sem Sólborg hefur tekið saman spurningar sem henni hafa borist síðastliðin ár og svör við þeim.
Útgefandi: Sögur
Höfundar: Sólborg Guðbrandsdóttir
Hvað: Bók
Áfallaviðbrögð við kynferðisofbeldi
Bæklingur sem fjallar um algeng viðbrögð við kynferðisofbeldi.
Útgefandi: Embætti landlæknis
Hvað: Pdf. bæklingur
Býrð þú við ofbeldi
Bæklingur sem fjallar um algengustu tegundir ofbeldis í nánum samböndum, andlegt, líkamlegt, kynferðislegt og fjárhagslegt. Bæklingurinn er til á íslensku, ensku og pólsku og gefinn út af Velferðarvaktinni og félagsþjónustunni á Suðurnesjum.
Útgefandi: Velferðarráðuneytið
Hvað: Bæklingur á mörgum tungumálum
Jafnréttisbaráttan
Kennsluefni sem ætlað er efri bekkjum grunnskóla. Það samanstendur af sex æfingum og einu hópverkefni en hver æfing stendur sjálfstætt. Því er frjálst að velja og nýta hvert verkefni fyrir sig.
Útgefandi: Þóra Þorsteinsdóttir
Hvað: Kennsluvefur og kennsluhefti
Kynferðisleg hegðun barna, hvað er eðlilegt?
Bæklingur sem hugsaður er fyrir foreldra og starfsfólk til að greina á milli eðlilegrar kynferðislegrar hegðunar barna og óeðlilegrar. Í bæklingnum eru atriði sem vert er að hafa í huga þegar kemur að því að fylgjast með kynferðislegri hegðun barna á leikskólaaldri og til tíu ára aldurs.
Útgefandi: Barnahús
Hvað: Bæklingur
Ofbeldi á heimili – með augum barna
Bókin er ætluð foreldrum og starfsfólki á öllum stigum skólakerfisins. Bókin er framlag til rannsókna á heimilisofbeldi, vanrækslu og misbeitingu gagnvart börnum og mæðrum og jafnframt innlegg í baráttuna gegn þessu alvarlega þjóðfélagsmeini sem ofbeldi er.
Útgefandi: Háskólaútgáfan/Guðrún Kristinsdóttir
Hvað: Bók
Verndum þau
Í þessari bók er fjallað á aðgengilegan hátt um helstu tegundir ofbeldis og lesendur eru upplýstir um eðli og birtingarmyndir ofbeldis og vanrækslu. Einnig er fjallað um ferli mála af þessu tagi hjá barnaverndaryfirvöldum og innan dómkerfisins.
Útgefandi:Mennta- og menningarmálaráðuneytið og Æskulýðsvettvangurinn
Hvað: Bók
Vefur 112.is – Ofbeldi
Kynferðislegt ofbeldi er það þegar einhver káfar á þér eða fær þig til að gera eitthvað kynferðislegt sem þú vilt ekki gera. Kynferðisleg áreitni með orðum og látbragði er líka ofbeldi. Hér er hægt að nálgast fróðleik um kynferðislegt ofbeldi.
Útgefandi: Af vef 112.is/ofbeldi
Hvað: Vefefni
Klám og „sexting“ – kynning fyrir starfsfólk og foreldra.
Margrét Lilja Guðmundsdóttir, sérfræðingur hjá Rannsóknum og greiningu og kennari við íþróttafræðideild Háskólans í Reykjavík Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir, verkefnisstjóri Jafnréttisskóla Reykjavíkur
Kynning þeirra fjallar um Klám og „sexting“ – umfang kynferðislegra myndsendinga meðal barna.
Útgefandi: Rannsókn og greining og Jafnréttisskóli Reykjavíkur
Hvað: Myndband
Einkastaðir líkamans
Bókin fjallar um líkamann, hvernig við setjum öðrum mörk og um einkastaði líkamans. Bókin gefur foreldrum og uppalendum hugmyndir að því hvernig hægt er að nálgast umræðuna um þetta mikilvæga málefni við börn á aldrinum 5 til 12 ára. Hér eru leiðir til að færa talið að einkastöðum líkamans og mikilvægi þess að segja frá óþægilegum leyndarmálum og snertingum.
Útgefandi: Barnaheill
Hvað: Bók
Tölfræði um þróun ofbeldis gegn börnum á Íslandi 2019
Útgefandi: Unicef
Hvað: Pdf bæklingur
Gegn einelti – Stöndum saman
Á vefnum er að finna upplýsingar um eineltismál þar sem nemendur, foreldrar og fagfólk geta nálgast upplýsingar og góð ráð.
Útgefandi: Menntamálastofnun
Hvað: Vefur
Fræðsluefni frá Barnaheill
Hvað: Fjölbreytt fræðsla.
Ofsi – Ofbeldisforvarnarskólinn
Ofbeldisforvarnarskólinn hefur það markmið að miðla til sem flestra áhrifaríkum forvörnum gegn ofbeldi.
Skólinn býður upp á netnámskeið, fyrirlestra og ráðgjöf.
Útgefandi: Ofbeldisforvarnarskólinn
Hvað: Vefefni
Barnaheill, ráðgjöf
Einn þáttur í starfi Barnaheilla – Save the Children á Íslandi er ráðgjöf þar sem hægt er að leita upplýsinga um réttindi barna og fá ráðgjöf um hvernig bregðast megi best við ýmsum aðstæðum sem varða börn. Allmargir leita til samtakanna og eru flestar fyrirspurnir um lögfræðileg álitaefni eða um ráðgjöf varðandi viðbrögð vegna ofbeldis gegn börnum. Málin eru af ýmsum toga; forsjármál, umgengnismál, eineltismál, grunur um ofbeldi gegn börnum og ýmiss konar réttindamál.
Símanúmer 553 5900
Senda fyrirspurnir á [email protected]. Farið er með allar fyrirspurnir sem trúnaðarmál.
Börn og miðlalæsi
Börn og miðlalæsi
Þessi handbók er ætluð foreldrum barna á grunnskólaaldri. Í henni er fjallað um sjónarmið sem gott er að hafa í huga í tengslum við miðlanotkun barna og ungmenna. Handbókin er þýdd og staðfærð af fjölmiðlanefnd og Heimili og skóla. Hún er upprunalega gefin út í Finnlandi.
Útgefandi: Saft
Hvað: pdf
Foxit Reader eða Kami – Að vista verkefnabækur og skrifa inn í þær
Hægt er að vista pdf skjöl eins og verkefnabækur og rafbækur frá Menntamálastofnun í forritunum Foxit Reader og Kami og leysa verkefnin inn í þau í tölvunni. Þegar bók er opnuð í þessum forritum birtast valmöguleikar sem gera þér kleift að skrifa á línurnar og vinna með efnið.
Hér eru upplýsingar um hvernig farið er að í Foxit Reader.
Foxit Reader forritið má sækja hér.
Forritið Kami er viðbót við Google Drive og Google classroom, Kami má sækja hér