Vefefni

Allt um ástina

Allt um ástina er ætlað nemendum með öðruvísi taugaþroska sem þurfa aðlagað námsefni. Efnið er hugsað til notkunar í eldri bekkjum grunnskóla og á starfsbrautum framhaldsskóla. Þá nýtist efnið einnig í fullorðinsfræðslu fyrir fatlað fólk.

Námsefnið Allt um ástina er hugsað til að efla nemendur til að vera betur í stakk búin að stunda örugg samskipti í raun- og netheimi með uppbyggjandi hætti. Efla færni til að setja öðrum mörk í samskiptum, læra leiðir til til að kynnast öðrum með náin sambönd í huga og þekkja hvað greinir á milli heilbrigðra og óheilbrigðra ástarsambanda. Auk þess að læra að hlúa betur að sjálfum sér og eigin líðan. Einnig að kynnast sér, sínum löngunum og hvað það er sem heillar í fari annarra.

Útgefandi: Menntamálastofnun og Ráðgjafar- og greiningarstöð

Höfundar:  María Jónsdóttir og Thelma Rún van Erven

Myndhöfundur: Sigmundur Breiðfjörð

Hvað: Vefefni


Kynþroskaárin

Námsefnið Kynþroskárin er ætlað börnum og ungmennum sem þurfa aðlagaða námsefni.

Kynþroski er tími breytinga, líkaminn breytist sem og tilfinningar okkar. Þá taka samskipti og sambönd okkar við aðra líka breytingum. Þetta tímabil reynir stundum á unglinginn og nánasta umhverfi hans. Undirbúa þarf barnið vel undir unglingsárin. Það er mikilvægt að byrja snemma að kenna börnum grundvallarhugtök um samskipti og kynverund áður en hinn eiginlegi kynþroski hefst, það auðveldar allt lærdómsferlið.

Útgefandi: Menntamálastofnun og Ráðgjafar- og greiningarstöð

Höfundur:  María Jónsdóttir

Myndhöfundur: Viktoría Buzukina

Hvað:  Vefefni


Kynfræðsluvefurinn

Fræðslu- og námsvefur þar sem fjallað er á skýran og myndrænan hátt um helstu atriði í tengslum við kynþroska, kynlíf og kynheilbrigði. Texti er stuttur og hnitmiðaður og hægt að velja hlustun. Vefurinn er ríkulega myndskreyttur með skýringamyndum og hreyfimyndum.

Útgefandi: Menntamálastofnun

Höfundur: Margrét Júlía Rafnsdóttir

Hvað: Vefur

Hinsegin: Tvíkynhneigð

Í efninu er fjallað um það að laðast að fleiri en einu kyni. Algengur misskilningur varðandi tvíkynhneigð er að tvíkynhneigt fólk hrífist nákvæmlega jafn mikið af öllum kynjum. Vissulega getur það verið raunin en margt tvíkynhneigt fólk hrífst oftar, og jafnvel aðallega, að annaðhvort konum eða körlum en er samt tvíkynhneigt.

Útgefandi: Leikni og Samtökin ´78

Höfundur: Guðrún Þorsteinsdóttir, Heiðrún Fivelstad og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Hinsegin: Trans

Trans er regnhlífarheiti yfir fólk sem er með kynvitund sem samræmist ekki því kyni sem því var úthlutað við fæðingu. Þegar við fæðumst er í langflestum tilfellum tilkynnt um kyn okkar, hér er fæddur lítill drengur eða lítil stúlka. Fólk sem hefur aldrei þurft að efast um að þessi tilkynningin hafi verið rétt er sískynja. Þetta á við um velflesta.Trans fólk, aftur á móti, hefur á einhverjum tímapunkti efast um að það kyn sem tilkynnt var um við fæðingu sé rétt og passi. Athugið að hér er ekki átt við líffræðileg kyneinkenni fólks heldur upplifun fólks af kyni sínu.

Útgefandi: Leikni og Samtökin ´78

Hvað: Vefefni

Netnotkun

Netið býður upp á óteljandi möguleika.Netið er skemmtilegt og það er hægt að læra margt í gegnum netið, fara í leiki, skoða og horfa á myndir, fræðast og svo má lengi telja. Börn og ungmenni verja meiri og meiri tíma á netinu og þörfin fyrir öryggri netnotkun aldrei verið meiri. Við þurfum að vera sívakandi fyrir hatursorðræðu og ofbeldi á vefmiðlum og mikilvægt að foreldrar fylgist vel með netnotkun ungmenna.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Einkarými og almannafæri

Í efninu er fjallað um hvað má og hvað má ekki á ákveðnum stöðum. Nemendur glöggva sig á því hvað má ekki gera á almannafæri heldur ætti að stunda í einkarými. Einkarými og almannafæri geta verið flókin orð fyrir suma að skilja. Það getur verið hjálplegt að hugsa að einkarými er staður þar sem maður getur verið einn og í næði. Almannafæri er hins vegar staður sem er öllum opinn, eins og til dæmis bíó, sund og skóli.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Allt um stelpur – kynþroski og hreinlæti

Í efninu er fjallað um líkamlegar og tilfinningalegar breytingar sem eiga sér stað á kynþroskaskeiðinu. Samhliða fræðslu kynþroska er fjallað um mikilvægi persónulegs hreinlætis hvers og eins bæði líkamlega og líka að hafa snyrtilegt í kring um sig.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Allt um stráka – kynþroski og hreinlæti

Í efninu er fjallað um líkamlegar og tilfinningalegar breytingar ungmenna sem eiga sér stað á kynþroskaskeiðinu. Samhliða fræðslu kynþroska er fjallað um mikilvægi persónulegs hreinlætis hvers og eins bæði líkamlega og líka að hafa snyrtilegt í kring um sig.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Sjáflsfróun stelpur

Bæði stúlkur og drengir geta veitt sér kynferðislegan unað ein sér eða með öðrum. Sjálfsfróun er góð leið til að kynnast líkama sínum og finna út næma staði hans. Að þekkja líkama sinn eykur líkurnar á góðu kynlífi með sjálfum sér og öðrum. Í efninu er fjallað um sjálfsfróun og hvað þarf að hafa í huga þegar fólk nýtur kynlífs með sjálfum sér.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Sjálfsfróun strákar

Bæði stúlkur og drengir geta veitt sér kynferðislegan unað ein sér eða með öðrum. Sjálfsfróun er góð leið til að kynnast líkama sínum og finna út næma staði hans. Að þekkja líkama sinn eykur líkurnar á góðu kynlífi með sjálfum sér og öðrum. Í efninu er fjallað um sjálfsfróun og hvað þarf að hafa í huga þegar fólk nýtur kynlífs með sjálfum sér.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Hinsegin: Samkynhneigð

Kynhneigð segir til um hverjum við löðumst að rómantískt og kynferðislega. Að vera samkynhneigður þýðir að laðast að fólki af sama kyni og þú.  Hommi er samkynhneigður karlmaður og lesbía er samkynhneigð kona.  Bæklingurinn er á auðskyldu máli með miklu myndefni svo hann sé auðveldur yfirlestrar fyrir fólk með þroskahömlun. Meðal annars er fjallað um homma og lespíur, fordóma og stuðining og fræðslu um málefnið.

Útgefandi: Leikni og Samtökin ´78

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir, Heiðrún Fivelstad og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Samskipti

Góð samskipti eru lykill að jákvæðum tengslum sem gefa lífinu gleði og innihald. Samskiptafærni er því afar mikilvæg þegar kemur að samstarfi, ástarsamböndum öllu því sem við kemur mannlegum tengslum. Þar skiptir miklu að geta sett sig í spor annarra, geta leyst ágreining með farsælum hætti, fundið lausnir og náð málamiðlun.

Í þessu efni er fjallað um samskipti, vináttu og ástarsambönd meðal annars.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni

Sjálfsmynd

Sjálfsmynd er heildarhugmynd einstaklings um sjálfan sig. Þar koma við sögu fjölmargir þættir, s.s. persónuleiki, áhugamál, skoðanir, gildismat, kyn, aldur, störf o.s.frv. Sjálfsmyndin er þannig byggð upp af fjölmörgum atriðum sem við teljum eiga við um okkur.  Í þessu efni er fjallað um það hver ertu og hvað finnst þér um sjálfan þig.

Útgefandi: Leikni

Höfundar: Guðrún Þorsteinsdóttir og María Jónsdóttir

Hvað: Vefefni