Kynjafræði fyrir byrjendur
Kynjafræði fyrir byrjendur er kennslubók í kynjafræði fyrir framhaldsskóla. Viðfangsefni bókarinnar eru m.a. femínismi, karlafræði og hinseginfræði, og sérstakir kaflar eru um kyn og fjölmiðla og kynbundið ofbeldi.
Útgefandi: Forlagið
Höfundar: Þórður Kristinsson, Björk Þorgeirsdóttir
Hvað: Rafbók
Huldukonur
Vefur þessi inniheldur afrakstur heimildasöfnunarverkefnisins Huldukonur. Hinsegin kynverund kvenna í íslenskum heimildum 1700–1960.
Vefnum er ætlað að vera upplýsingasíða fyrir áhugasaman almenning, upphafspunktur fyrir fræðimenn og nemendur sem leita heimilda um hinsegin kynverund kvenna á tímabilinu 1700–1960, og efnisveita fyrir kennara sem vilja fjalla um hinseginleika í sögu- og sagnfræðikennslu. Umfjöllunin er ekki tæmandi og hér er ekki um að ræða lokaniðurstöðu rannsóknar. Þvert á móti er það von aðstandenda að vefurinn verði stökkpallur fyrir frekari rannsóknir á hinsegin kynverund kvenna á tímabilinu 1700–1960.
Höfundar: Ásta Kristín Benediktsdóttir, Hafdís Erla Hafsteinsdóttir og Íris Ellenberger.
Hvað: Vefur
Þekktu rauðu ljósin
Herferðin Þekktu rauðu ljósin er svar Kvennaathvarfsins og Bjarkarhlíðar við síaukinni eftirspurn ungs fólk eftir aðstoð vegna ofbeldis í nánum samböndum. Verkefnið var styrkt af Jafnréttissjóði Íslands.
Umræðan um ofbeldi í nánum samböndum beinist oft að fólki sem hefur búið saman og ofbeldið átt sér stað innan veggja heimilisins en skortur er á efni sem beint er til fólks sem hefur nýhafið samband. Herferðin miðar að því að minna á að ofbeldi birtist smátt og smátt í samböndum, að ýmis viðvörunarmerki eru oft undanfari ofbeldisins.
Vitundarvakningin felst í stuttum myndböndum þar sem nokkrar hugrakkar konur sem stigið hafa út úr ofbeldissamböndum líta til baka og ræða viðvörunarljósin sem birtust í sambandinu þó þær hafi ekki séð þau fyrr en of seint.
Útgefandi: Kvennaathvarfið og Bjarkarhlíð
Hvað: Stuttir viðtalsþættir
Áttavitinn
Áttavitinn er upplýsingagátt miðuð að ungu fólki á aldrinum 16–25 ára. Á síðunni má finna hagnýtan fróðleik sem viðkemur hinum ýmsu sviðum lífsins. Áttavitinn býr yfir öflugu teymi fagaðila sem svarar nafnlausum spurningum á netinu endurgjaldslaust. Helsta markmið Áttavitans er að styrkja ungt fólk í að taka upplýstar ákvarðanir og velja jákvæða lífsleið. Vefsíðunni er ætlað að auðvelda ungu fólki að finna góðar og áreiðanlegar upplýsingar, setja flókna hluti fram á mannamáli og lista upp þau tækifæri og réttindi sem standa ungu fólki til boða.
Útgefandi: Hitt húsið
Hvað: Vefur
Verum örugg
Bæklingur þessi er um kynferðislega misnotkun og nýtist öllum þeim sem eiga erfitt með lestur og lesskilning. Sumt í þessum bæklingi gæti verið óþægilegt að lesa og gæti valdið áhyggjum. Því er gott að lesa bæklinginn yfir með einhverjum sem nemandinn treystir. Efnið hentar vel fólki með þroskahömlun t.d. á starfsbrautum framhaldsskóla.
Útgefandi: Ás styrktarfélag, Fjölmennt og Þroskahjálp
Hvað: Bæklingur á rafrænu formi
Hinsegin frá Ö til A
Til að hægt sé að ræða um og spá í hinsegin veruleika verðum við að eiga orð og hugtök yfir hann. Ef við ættum engin orð yfir hinsegin tilveru værum við ósýnileg. Þá væri ekki hægt að tala um gleðina sem fylgir því að vera hinsegin, um vegferðina, félagsskapinn, pólitíkina og allt hitt. Þess vegna er fyrsti hluti þessa vefs helgaður nokkrum hugtökum sem leggja grunninn að skilningi á hinsegin málefnum.
Útgefandi: Samtökin ´78
Hvað: Myndband
Sjúk ást
SJÚKÁST er forvarnarátak á vegum Stígamóta um ofbeldi í nánum samböndum ungmenna. Markmið átaksins er að ungmenni þekki lykilhugtök á borð við mörk og samþykki og geti greint muninn á heilbrigðum, óheilbrigðum og ofbeldisfullum samböndum.
Þessi vefsíða inniheldur auðlesnar upplýsingar um ýmislegt sem viðkemur samböndum ungs fólks. Á henni má finna upplýsingar um birtingarmyndir ofbeldis, kynlíf, klám, hvað einkennir heilbrigð sambönd og ýmislegt fleira. Þá eru hér líka upplýsingar um jafnrétti og femínisma auk kafla um aktívisma fyrir þau sem vilja leggja sitt af mörkum í baráttunni gegn ofbeldi.
Útgefandi: Stígamót
Hvað: Fræðsluefni
Ekki vera þessi gaur
„Ekki vera þessi gaur“ er vitundarvakning til að fræða karlmenn um sem vilja koma í veg fyrir kynferðisofbeldi. Efnið er byggt á vitundarvakningu um sama efni í Skotlandi (That Guy) og Kanada (Sexual Assault Voices in Calgary). Þar er lögð áhersla á að fræða unga karlmenn um eigin hegðun gagnvart konum og hvetja þá til að verða hreyfiafl meðal jafningja sinna í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi.
Útgefandi: 112
Hvað: Myndband
Sjúkt spjall
Sjúkt spjall er nafnlaust netspjall fyrir ungmenni til að ræða áhyggjur af samböndunum sínum, samskiptum eða ofbeldi.
Spjallið er fyrir fólk yngra en 20 ára af öllum kynjum.
Ekki hika við að nýta ykkur þetta!
Útgefandi: Stígamót
Hvað: Vefur
Gegn einelti – Stöndum saman
Á vefnum er að finna upplýsingar um eineltismál þar sem nemendur, foreldrar og fagfólk geta nálgast upplýsingar og góð ráð.
Útgefandi: Menntamálastofnun
Hvað: Vefur
Verum vakandi
Á vef 112 eru upplýsingar um hvernig allir geti staðið saman og koma í veg fyrir kynferðisofbeldi áður en það gerist. Verum vakandi og stígum inn í ef við sjáum einhvern ekki virða mörk.
Það á að vera öruggt að fara út og skemmta sér. Á vefnum er að finna upplýsingar um kynferðislegt ofbeldi og áreiti og nauðganir.
Útgefandi: Neyðarlínan – 112
Hvað: Vefefni
Foxit Reader eða Kami – Að vista verkefnabækur og skrifa inn í þær
Hægt er að vista pdf skjöl eins og verkefnabækur og rafbækur frá Menntamálastofnun í forritunum Foxit Reader og Kami og leysa verkefnin inn í þau í tölvunni. Þegar bók er opnuð í þessum forritum birtast valmöguleikar sem gera þér kleift að skrifa á línurnar og vinna með efnið.
Hér eru upplýsingar um hvernig farið er að í Foxit Reader.
Foxit Reader forritið má sækja hér.
Forritið Kami er viðbót við Google Drive og Google classroom, Kami má sækja hér